Áratuga reynsla af sölu, markaðs og vefmálum. Rekstur og vefumsjón á hjartalif.is í yfir 20 ár en hjartalif.is er öflugasti vefur landsins með umfjöllun um hjartað.

Björn ÓFeigsson er eigandi Cor Media slf.
Björn Ófeigsson er eigandi Cor Media slf.

Hvað gerum við?

Vefumsjón og samfélagsmiðlar

Umsjón, þróun, efnisvinnsla og uppfærslur á heimasíðum. Auglýsingar á samfélagsmiðlum.

Efnis og textavinnsla

Textagerð og vinnsla á myndefni.

Sölu og markaðsráðgjöf

Stefna, greining og hagnýt ráð til að hámarka árangur.

Fyrirlestrar og fræðsla

Lífsreynsla frá fyrstu hendi

Björn Ófeigsson deilir sinni eigin hjartareynslu – frá hjartaáfalli til opinnar hjartaaðgerðar og lífinu með hjartabilun. Sögurnar eru persónulegar, en um leið hvetjandi.

Duldu merkin

Hver eru rauðu flöggin sem við hunsum oft í aðdraganda hjartaáfalls? Í fyrirlestrunum lærir fólk að þekkja þessi merki og bregðast tímanlega við.

Fyrirtæki, hópar og félagasamtök

Fyrirlestrarnir henta fyrirtækjum, skólum og félagasamtökum sem vilja efla vitund, bæta heilsu og hvetja fólk til að hugsa um hjarta sitt.

Fyrirlestrar sem
snerta og fræða

„Ég hef lifað með hjartasjúkdóm í yfir tvo áratugi eftir að hafa fengið alvarlegt hjartaáfall þar sem ég fékk ranga greiningu og meðferð í upphafi. Ég hef farið í áhættusama opna hjartaaðgerð og á annan tug hjartaþærðinga og lifað með hjartabilun frá áfallinu auk þess að vera með gangráð/bjargráð. Þessi reynsla hefur kennt mér mikilvægi þess að þekkja duldu merkin sem líkaminn sendir okkur en við þekkjum fæst eða berum ekki kensl á.

Í fyrirlestrum mínum deili ég þessari reynslu á persónulegan og hvetjandi hátt. Markmiðið er að opna augu fólks fyrir því sem raunverulega skiptir máli, auka vitund og deila verkfærum sem gætu komið að gagni.“

Björn að hjóla fyrir hjartað með Bjarti.
Björn að hjóla fyrir hjartað.

Scroll to Top